Fundu rúmlega 30 manns í gámi

Tilbury er í um 40 km fjarlægð frá London.
Tilbury er í um 40 km fjarlægð frá London. Mynd:Wikipedia

Rúmlega þrjátíu manns fundust í gámi við Tilbury höfnina í Essex í Englandi í morgun. Talið er að um ólöglega innflytjendur sé að ræða. Einn maður var látinn í gámnum þegar fólkið fannst. 

Sjö sjúkrabílar voru sendir á svæðið og samkvæmt fréttastofunni Sky hafa 19 þeirra sem fundust í gámnum verið fluttir á sjúkrahús í nágrenninu alvarlega veikir. Þar á meðal eru sjö börn. 

Lögreglan í Essex er nú að rannsaka gáminn sem kom til Englands frá Belgíu í morgun.

Talsmaður lögreglunnar sagði í yfirlýsingu að 31 manns hafi fundist í gámnum, á öllum aldri og báðum kynjum. „Því miður hafði einn maður látist í gámnum og eru margir aðrir alvarlega veikir.“

Rannsókn málsins mun halda áfram í dag en ekki er vitað um uppruna fólksins.  

Sjá frétt Sky um málið.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert