Sá siður hefur verið að steinasafn Petru á Stöðvarfirði hefur verið með ljósakvöld í lok sumars og eitt slíkt var í kvöld. Fréttaritari Morgunblaðsins og mbl.is, kom við og tók þar myndir.
Í safninu er boðið til veislu. Allmargir gestir voru og undu sér vel við að skoða safnið og gæða sér á kaffi og bakkelsi undir harmonikkuleik Björns Pálssonar.