Tveggja ára drengur liggur nú alvarlega slasaður á sjúkrahúsi í Liverpool eftir að hafa fallið niður af svölum á fyrstu hæð á Hilton hóteli í gær. Slysið varð í gær og hlaut barnið alvarlega höfuðáverka.
Starfsfólk hótelsins veitti drengnum fyrstu hjálp þar til sjúkraflutningamenn komu á staðinn. Rannsókn er hafin á slysinu.
Frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar.