Lavrov kallar eftir bættum samskiptum

Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands.
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands. AFP

Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir tímabært að bæta samskipti Rússlands og Bandaríkjanna, en hann segir að ríkistjórn Obama Bandaríkjaforseta beri ábyrgð þeim slæmu samskiptum sem eigi sér stað í dag. Lavrov kallar eftir „endurstillingu 2,0“.

Hann var ráðherra þegar samskiptin voru „endurstillt“ árið 2010. Lavrov segir að núverandi stjórn Bandaríkjanna hafi framið skemmdarverk á samskiptum þjóðanna. 

„Það er algjörlega í okkar þágu að bæta tengslin en við eyðilögðum þau ekki,“ sagði Lavrov í samtali við rússneska fréttastöð. 

Bandaríkin fóru fyrir ríkjum sem beittu Rússa refsiaðgerðum vegna aðgerða þeirra í Úkraínu, en Rússa innlimuðu Krím fyrr á þessu ári og þá eru þeir sakaðir um að styðja við bakið á aðskilnaðarsinnum í austurhluta landsins. Rússar neita þessari ásökun. 

Þá eru Rússar á öndverðum meiði en Vesturveldin hvað varðar stöðu mála í Sýrlandi. 

Í júní árið 2010 staðfesti Obama endurbætt samskipti Rússa og Bandaríkjamanna á leiðtogafundi þegar þáverandi forseti Rússlands, Dimítrí Medvev, heimsótti Hvíta húsið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert