Ungum breskum karlmanni var nauðgað á bjórhátíðinni Októberfest í München í Þýskalandi um helgina. Tveir karlmenn réðust á manninn, sem er 24 ára, þegar hann var að kasta af sér þvagi í runna á hátíðarsvæðinu.
Maðurinn sagðist í samtali við lögreglu hafa streist á móti en mennirnir hafi ýtt honum niður í jörðina. Annar hélt manninum á meðan hinn nauðgaði honum. Mennirnir sluppu og eru ófundnir.