Verður ákærður fyrir morð

Alton Nolen
Alton Nolen AFP

Móðir Alton Nolen, sem afhöfðaði fyrrverandi samstarfskonu, á fimmtudag, hefur birt myndskeið á Facebook þar sem hún biðst afsökunar á ofbeldi sonarins. Fyrirsögnin er „Þetta er ekki sonur minn“. 

Nolen, sem er þrítugur að aldri, verður ákærður fyrir morð og líkamsárás síðar í dag en hann réðst vopnaður hnífi á fyrrverandi samstarfsfólk hjá Vaughan Foods í úthverfi Oklahoma á fimmtudag. Fyrr um daginn hafði hann verið rekinn úr vinnunni meðal annars fyrir að hafa reynt að troða trúarskoðunum sínum upp á vinnufélagana en hann snérist til múslímatrúar nýverið.

Nolen náði að myrða konu á sextugsaldri og særa aðra konu alvarlega áður en lögreglumanni tókst að skjóta hann og særa. 

Móðir hans biður fjölskyldur kvenanna beggja afsökunar í myndskeiðinu og segist vona að réttlætinu verði fullnægt. Systir hans segir að Nolan hafi aldrei sýnt af sér ofbeldisfulla hegðun áður og það sé einungis guð sem viti hvað hafi gerst.

Afhöfðaði fyrrverandi samstarfskonu sína

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert