Lík 7 kvenna fundust um helgina í Indiana í Bandaríkjunum. Fjórar kvennanna fundust látnar á laugardag, þar á meðal kona sem hafði verið kyrkt til dauða á hótelherbergi. Darren D Vann, 43 ára gamall maður, játaði að hafa myrt konuna, og vísaði lögreglumönnum í kjölfarið á lík þriggja kvenna til viðbótar.
Lögregla fann lík kvennanna þriggja seint á laugardag og á sunnudagsmorgun, en þær höfðu allar verið myrtar. Ein þeirra hafði verið kyrkt, en dánarorsök hinna tveggja liggur ekki fyrir.
Vann er í haldi lögreglu og er sagður tengdur öllum 7 morðunum. Lögreglumenn telja hann geta vísað á enn fleiri lík, en talið er að hann sé kaldrifjaður fjöldamorðingi.