Yfirvöld í Kanada segja að lík fjögurra ungbarna hafi fundist í geymsluskáp í Winnipeg. Starfsmaður geymsluhúsnæðis fann rotnuð lík í skáp og gerði lögreglu viðvart á mánudag.
Greint er frá þessu á vef BBC, en þar kemur fram að ekki sé búið að rannsaka líkin og þar af leiðandi ekki búið að bera kennsl á þau.
Lögreglan hefur rætt við nokkra einstaklinga vegna málsins. Líkamsleifarnar virðast hins vegar ekki tengjast málum þar sem tilkynnt hefur verið um mannshvörf.
Eric Hofley, talsmaður lögreglunnar í borginni, sagði við fjölmiðla að málið væri verulega sorglegt.
Hann sagði ennfremur að líkin væru af nýfæddum eða mjög ungum börnum.