Tvær bifreiðir hlaðnar sprengiefni sprungu á fjölförnum stöðum í höfuðborginni Bagdad í Írak í dag. AFP fréttaveitan greinir frá því að minnst 14 hafi látið lífið og 50 hafi slasast.
Fyrri sprengjan sprakk við spítala í shía-múslima hverfinu Sadr City, en þar létust að minnsta kosti níu og þá slösuðust 22 til viðbótar. Seinni sprengjan sprakk nálægt bensínstöð í Karrada, hverfi miðsvæðis í Baghdad sem ítrekað hefur verið ráðist á. Að minnsta kosti fimm létust og 28 slösuðust.
Sprengjuárásir, þar á meðal sjálfsmorðssprengiárásir, hafa aukist í borginni á síðustu dögum. Hryðjuverkahópurinn Ríki íslam, sem stjórnar ákveðnum hluta landsins, hefur lýst yfir ábyrgð á sumum árásanna, en liðsmenn hópsins hafa herjað markvisst á borgina upp á síðkastið.
Liðsmenn Ríki íslams hafa nú yfirráðum í stórum hluta Anbar héraðs sem er vestan við Bagdad. Síðustu vikur hafa þeir náð yfirráðum í borginni Hit og ráðist á höfuðborg héraðsins Ramadi. Hún er aðeins 112 kílómetrum frá Bagdad.
Bílsprengjur eru nær daglegt brauð í Bagdad. Telja Sameinuðu þjóðirnar að minnst 1.119 manns hafi í síðasta mánuði fallið í vopnuðum átökum í landinu. Flestir þeirra eru almennir borgarar.