Tugir þúsunda gengu götur Tapei í Tævan í dag til að berjast fyrir réttindum samkynhneigðra í landinu. Skrúðgangan er stærsta réttindaganga hinsegin fólks í Asíu.
Margir tóku þátt í göngunni til að þrýsta á þingmenn í landinu að samþykkja lög sem heimila hjónabönd samkynhneigðra.
Gangan, sem nefnist „Walk in Queers’ Shoes,“ eða Gangið í skóm hinsegin fólks, var í dag haldin í 12. skipti.