Vaxandi stuðningur við aðild að NATO

Sænska herskipið Gävle.
Sænska herskipið Gävle. Wikipedia

Tæpur meirihluti Svía vill gerast aðili að Atlantshafsbandalaginu (NATO) samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar ef tekið er mið af þeim sem taka afstöðu með inngöngu í bandalagið og eru andsnúnir því.

Fram kemur í frétt norska dagblaðsins Dagbladet að þannig vilji 37% gerast aðilar að NATO en 36% séu því andvíg. Skoðanakönnunin var gerð af fyrirtækinu Novus fyrir fréttatíma sænsku sjónvarpsstöðvarinnar TV4. Segir í fréttinni að þetta sé í fyrsta sinn sem kannanir fyrirtækisins sýni stuðningsmenn aðildar fleiri en andstæðinga hennar.

Skoðanakönnunin var gerð í kjölfar þess að leit fór fram í sænska skerjagarðinum að óþekktum kafbáti sem talinn var að væri rússneskur. Þá séu enn átök í Úkraínu sem kunni að hafa áhrif á niðurstöðurnar.

Rifjað er upp að skoðanakönnun fyrirtækisins Ipsos frá því í maí hafi sýnt 28% Svía hlynnt inngöngu í NATO en 56% andvíg inngöngu í bandalagið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert