Þegar nágranni konu í New York sá mann draga á eftir sér höfuðlaust lík, hélt hún að um hrekkjavökugabb væri að ræða. En þetta var morð. Morðinginn, karlmaður á fertugsaldri, hálshjó konuna og stökk svo fyrir lest.
Í bandarískum fjölmiðlum kemur fram að konan hafi verið á sjötugsaldri og búið á Long Island. Lík hennar fannst á þriðjudag. Um 25 mínútum síðar var tilkynnt um mann sem hefði stokkið fyrir lest skammt frá og látist.