Skar nef og varir af kærustu sinni

Wikipedia

Lögregla á Taílandi hefur handtekið karlmann sem skar nef, eyru og varir af kærustu sinni og sturtaði niður um klósettið. Maðurinn er 79 ára, en hann taldi að hún hefði haldið framhjá sér. Maðurinn batt konuna, sem er 47 ára, við rúm á heimili sínu og réðst á hana með hníf.

Maðurinn hringdi á sjúkrabíl þegar hann hafði sturtað nefinu, eyrunum og vörum niður. Á miða sem maðurinn skrifaði stóð að hann myndi aldrei leyfa öðrum að eignast auðveldlega það sem hann ætti. Það myndi enda með blóðbaði.

Eiginkona mannsins lést í síðasta mánuði. Hann hafði aftur á móti byrjað að hitta konuna sem hann misþyrmdi fyrir hálfu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert