Lögreglan í Japan hefur hafið rannsókn á dauða um fjörutíu hunda en hræ þeirra fundust í og við á í borginni Sakura í gær.
Það var maður sem var á göngu við ána sem sá hræin en flestir hundanna voru smáhundar og höfðu ekki verið dauðir lengi.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru þeir flestir í hundafatnaði og hafði verið hent út í ána en einhver hræ voru við árbakkann.
Meðal þess sem nú er rannsakað er hvort einhver dýra-útfararþjónusta hafi einfaldlega losað sig við hræin í stað þess að brenna þau.