Fjölmiðlar í Norður-Kóreu hafa birt myndir af leiðtoga landsins, Kim Jong-un, þar sem hann gengur einn og óstuddur. Kim hefur þurft að ganga með staf að undanförnu og hafa sögusagnir verið um að hann hafi brákað báða ökkla sína vegna ofþyngdar.
Í frétt BBC kemur fram að Kim hafi ekki sést opinberlega í sex vikur þar til hann var viðstaddur athöfn í landinu sínu en gekk þá með staf. Fjölmiðlar í Suður-Kóreu segja að hann hafi gengist undir aðgerð á öklum, líklega í Frakklandi.
Á myndunum sem nú hafa verið birtar má sjá leiðtogann heilsa hersveitum sínum.