Skvetti sýru á fjögur börn

Frá Betlehem.
Frá Betlehem. AFP

Palestínumaður er grunaður um að hafa skvett sýru á fjölskyldu frá Ísrael eftir að hafa fengið far með þeim um Vesturbakkann í morgun. Í bílnum voru að minnsta kosti tveir fullorðnir og börn.  

Maðurinn réðst á fjölskylduna þegar bifreiðin nálgast umferðareftirlitsstöð við veg fyrir utan Betlehem. Karlmaður og fjórar stúlkur særðust í árásinni.

Maðurinn sem grunaður er um árásina var skotinn í fótlegginn af almennum borgara eftir að hann fór út úr bílnum og hefur hann nú verið handtekinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert