64 ára karlmaður er grunaður um að hafa myrt níu ára barnabarn sitt. Drengurinn fannst í íbúðarhúsi við Pennell Street í Lincoln í Bretlandi á Þorláksmessu og var hann illa á sig kominn. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést skömmu síðar.
Maðurinn hefur verið ákærður fyrir morðið og mun koma fyrir dómara í dag. Krufning fór fram í fyrradag, aðfangadag.