Tönn fannst í franskri kartöflu hjá McDonald's

McDonald's í Tókýó.
McDonald's í Tókýó. AFP

Mannstönn fannst í franskri kartöflu sem seld var hjá skyndibitakeðjunni McDonald's í Japan. Atvikið átti sér stað á síðasta ári. Þetta staðfesti fyrirtækið á blaðamannafundi í dag.

Viðskiptavinur fann framandi hlut í frönskuskammti sem hann keypti hjá veitingastaðnum í Osaka í Japan. Yfirmenn fyrirtækisins fyrirskipuðu óháða rannsókn til að komast að því hvað væri um að ræða. Í ljós kom að tönn úr manni var í frönskunum og að hún hafði ekki verið elduð.

„Við höfum ekki komist að því hvernig hún komst í matinn,“ segir Hidehito Hishinuma, aðstoðarframkvæmdastjóri McDonald's í Japan.

Viðskiptavinurinn sem fann tönnina er kona sem var á veitingastaðnum ásamt ungu barni sínu. Hún sagði í sjónvarpsviðtali að hún hefði fengið þau svör frá starfsmanni að tönnin hefði verið „djúpsteikt“.

„Ég fékk fyrst afsökunarbeiðni þegar yfirmaðurinn kom á svæðið,“ sagði konan. „Ég á lítið barn og get ekki hugsað þá hugsun til enda ef það hefði borðað tönnina og jafnvel kafnað á henni.“

McDonald's segir að enginn starfsmaður veitingastaðarins í Osaka hafi misst tönn og þá er talið ólíklegt að tönnin hafi komist í matinn er hráefnið, sem er frá Bandaríkjunum, var flutt til Japans.

Atvikið er aðeins eitt margra sem upp hafa komið að undanförnu hjá McDonald's. Nýverið fann maður plastbút í kjúklinganagga í japönsku borginni Misawa. Þá fannst svipað efni í mat veitingastaðarins í Tókýó. Þriðja dæmið um plasthlut í mat McDonald´s er svo frá borginni Koriyama en þar fannst harður plasthlutur í matnum í desember. Yfirmenn McDonald´s staðfesta að barn hafi hlotið skurð í munn í því tilviki.

„Við biðjumst innilegrar afsökunar,“ sagði aðstoðarforstjóri Japansdeildar McDonald´s á blaðamannafundinum í dag.

Síðasta sumar komst upp að kínverskur kjötframleiðandi sem seldi McDonald´s kjöt blandaði hráefnið með útrunnu kjöti.

Yfirmenn McDonald's í Japan, Takehiko Aoki og Hidehito Hishinuma hneigðu …
Yfirmenn McDonald's í Japan, Takehiko Aoki og Hidehito Hishinuma hneigðu sig og báðust afsökunar á blaðamannafundi í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert