Að minnsta kosti 56 eru látnir og tugir særðir eftir að sprengjuárás var gerð á mosku sjíta-múslíma í pakistönsku borginni Shikarpur í dag. Þetta er mesta mannfall í árás á sjíta-múslíma í landinu í tvö ár.
Fjölmargir voru inni í moskunni og stóðu föstudagsbænir yfir þegar sprengjan sprakk. Uppreisnarhópurinn Jundullah, sem samanstendur af súnní-múslímum, hefur þegar lýst ódæðinu á hendur sér.