Tólf manns hafa látið lífið undanfarinn sólarhring í átökum á milli hers Úkraínu og aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins. Þar af sjö óbreyttir borgarar.
Fram kemur í frétt AFP að yfirvöld í borginni Donetsk, sem er á valdi aðskilnaðarsinna, hafi ennfremur sagt að 23 hefðu særst í átökunum. Einkum vegna stórskotaliðsárása. Yfirmenn úkraínska hersins segja að 23 hermenn þeirra hefðu særst.
Átökin í landinu hafa staðið yfir undanfarna níu mánuði og kostað yfir 5 þúsund manns lífið.