Robert Mugabe, forseti Simbabve, hélt upp á afmælið sitt í gær með veislu sem kostaði ríki hans meira en 130 milljónir íslenskra króna. Veisluhöldin voru mikið gagnrýnd enda lifa íbúar Simbabve á um 46 krónum á dag að meðaltali. Forsetinn lét gagnrýnina eins og vind um eyru þjóta og fagnaði með stuðningsfólki sínu.
Mugabe varð 91 árs fyrir rúmri viku en ákvað að halda upp á það í gær. Hann hefur stýrt Simbabve frá árinu 1980 og er á meðal þeirra þjóðarleiðtoga sem hafa verið lengst við völd. Hann lýsti því einu sinni yfir að hann myndi stjórna landinu þar til hann næði 100 ára aldri. Hann er heilsuhraustur og er því aldrei að vita nema hann nái því markmiði.
Veislan var haldin á golfvelli nálægt Victoria Falls og mættu þúsundir stuðningsmanna Mugabe.
Frétt mbl.is: Öllu tjaldað til í afmæli „Hitlers Afríku“