Tennisstjarna dæmd fyrir nauðganir

Bob Hewitt árið 1967.
Bob Hewitt árið 1967. Af Wikipedia

Dómstóll í Suður-Afríku hefur sakfellt tennisstjörnuna Bob Hewitt fyrir að nauðga stúlkum undir lögaldri á níunda áratugnum.

Hewitt er fæddur árið 1940 og því 75 ára gamall. Hann er frá Ástralíu en árið 1967 giftist hann suðurafrískri konu og fékk ríkisborgararétt í  heimalandi hennar.

Hann var ákærður fyrir tvær nauðganir og eina kynferðislega árás. Hann neitaði sök.

Í frétt BBC kemur fram að Hewitt hafi nauðgað stúlkunum á níunda og tíunda áratugnum. Hann var þá tennisþjálfari þeirra í Suður-Afríku. 

Hewitt var stórstjarna í tennisheiminum á sjöunda og áttunda áratugnum. Hann vann fjölda titla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert