Sheryl Sandberg, framkvæmdastjóri Facebook, minntist eiginmanns síns, Davids Goldbergs, á Facebooksíðu sinni í gærkvöldi en Goldberg lést af slysförum á föstudaginn 47 ára að aldri.
Hún segir að á sama tíma og hún sé niðurbrotin þá hafi hún verið heppin að hafa þekkt hann og eytt lífinu með honum.
David Goldberg, framkvæmdastjóri SurveyMonkey, lést eftir að hafa rekið höfuðið í eftir fall af stigvél í líkamsrækt á hóteli í Mexíkó. Yfirvöld í Mexíkó hafa staðfest að Goldberg hafi látist á sjúkrahúsi þar í landi en fjölskyldan var í leyfi í strandbænum Punta Mita í Nayarit ríki.
„Dave og ég fengum alls ekki nægan tíma saman. En á sama tíma og ég er miður mín, líkt og ég er í dag, þá er ég þakklát. Jafnvel þessa síðustu daga sem hafa verið óviðbúið helvíti - erfiðustu dagarnir í lífi mínu - geri ég mér grein fyrir því hversu heppin ég hef verið,“ skrifar Sandberg.
„Ef einhver hefði sagt mér á brúðkaupsdag okkar Dave að þetta ætti eftir að gerast, að hann yrði tekinn frá okkur eftir aðeins 11 ár - þá hefði ég samt sem áður gengið inn kirkjugólfið með honum,“ skrifar Sandberg.
Fjölmargir hafa minnst Goldbergs, þar á meðal forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, sem minnist hans sem leiðtoga sem reyndi alltaf að hvetja aðra til dáða.