192 manns verða ákærðir

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. AFP

192 manns verða ákærðir eftir skotbardagana á milli liðsmanna mótorhjólagengja í bænum Waco í Texas í gær. Þetta segir lögreglan í Texas.

Að minnsta kosti níu manns létu lífið í átök­un­um en talið er að allt að tvö hundruð meðlim­ir mótor­hjóla­gengja hafi hist á Twin Peaks veit­ingastaðnum í Waco. Átján manns særðust.

Fjölskyldur þurftu að flýja verslunarmiðstöðina, þar sem veitingastaðurinn er, þegar átökin brutust út.

Í fyrstu brutust út slagsmál en fljótlega griptu menn til eggvopna, kylfa og loks byssna. Lögreglumaður í borginni sagði aðkomuna, á bílastæðaplaninu fyrir framan veitingastaðinn, þá hryllilegustu sem hann hafi séð.

Frétt mbl.is: Starfsfólkið faldi sig í frystiskáp

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert