Mála grasið grænt í þurrkinum

Sögulega miklir þurrkar hrjá nú íbúa Kaliforníuríkis. Grasið er því gult og það finnst mörgum óásættanlegt. Því hafa einhverjir íbúar gripið til þess ráðs að úða grænni málningu yfir grasflatir sínar.

Útkoman er sú að grasið virðist nývökvað og fallegt. En staðreyndin er hins vegar sú að undir málningunni er fölt grasið - sem þyrstir í vatn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert