Stakk samnemanda og framdi sjálfsvíg

Tyler Carlisle útskrifaðist frá Yale í síðustu viku.
Tyler Carlisle útskrifaðist frá Yale í síðustu viku. Skjáskot/Sky-sjónvarpsstöðin.

Karlmaður sem útskrifaðist frá Yale í síðustu viku framdi sjálfsvíg í gær með því að hoppa fram af byggingu. Þetta gerði hann eftir að hafa stungið rúmlega tvítugan samnemanda sinn. Fórnarlambið liggur á sjúkrahúsi og er ástand hans stöðugt.

Ekki er vitað af hverju maðurinn stakk samnemanda sinn. Mennirnir voru báðir frá Manchester og tóku þátt í starfi sama stjórnmálaflokksins. 

Frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert