Fundu lík stúlkunnar sem strauk

Amber Peat reifst við foreldrana og rauk á dyr. Hún …
Amber Peat reifst við foreldrana og rauk á dyr. Hún hefur nú fundist látin.

Breska lögreglan hefur fundið lík sem talið er vera af hinni 13 ára gömlu Amber Peat. Stúlkunnar hefur verið leitað frá því á laugardag. Lögreglan telur enn sem komið er að andlát hennar hafi ekki borið að með saknæmum hætti. 

Lögreglan í Nottinghamskíri segir að rannsókn málsins standi enn yfir. Amber fór af heimili sínu á laugardag eftir „minniháttar rifrildi“ vegna heimilisverka, að sögn lögreglunnar.

Foreldrar hennar komu fram í sjónvarpi eftir hvarf hennar og báðu hana að snúa aftur heim. Foreldrar hennar, móðir og stjúpfaðir, sögðu það mjög ólíkt henni að stinga af. Þau sögðu að fjölskyldan hefði verið nýkomin úr fríi er Amber fór að heiman eftir að hafa neitað að þrífa kælibox fjölskyldunnar.

Frétt Sky.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert