Fjórtán ára franskur piltur skaut tvíburabróður sinn til bana fyrir slysni í fjölskylduveislu í gær.
Harmleikurinn átti sér stað í bænum Hennezel í Vosges héraði, samkvæmt frétt frétt 20 Minutes.
Að sögn lögreglu var pilturinn að fikta með skotvopn við matarborðið og áttaði sig ekki á því að eitt þeirra var hlaðið. Hann skaut því fyrir slysni nokkrum skotum í brjósthol tvíburabróður síns sem lést af sárum sínum.