Hættir að teikna Múhameð

Forsíða fyrsta tölublaðs Charlie Hebdo sem kom út í kjölfar …
Forsíða fyrsta tölublaðs Charlie Hebdo sem kom út í kjölfar árásarinnar var afar umdeild. Teikningin er eftir Luz.

Laurent Sourisseau, ristjóri franska satírublaðsins Charlie Hebdo, hefur tilkynnt að blaðið muni ekki lengur teikna skopmyndir af Múhameð spámanni.

„Við höfum teiknað Múhameð til að standa vörð um þau grunngildi að hver ætti að geta teiknað það sem hann vill,“ sagði hann í samtali við þýska tímaritið Stern.

Skopmyndateiknarar blaðsins hefðu skilað sínu og staðið vörð um tjáningarfrelsið.

„Við höfum unnið okkar vinnu. Við höfum varið réttinn til að skopstæla,“ sagði hann. „Við trúum því enn að við höfum rétt á því að gagnrýna öll trúarbrögð.“

Tólf manns féllu í árásinni á ritstjórnarskrifstofur blaðsins í París í janúarmánuði síðastliðnum. Inn­an fárra daga gáfu eft­ir­lif­andi starfs­menn Charlie Hebdo út nýtt tölu­blað, sem skartaði teikn­ingu af Múhameð á forsíðunni und­ir fyr­ir­sögn­inni „Allt er fyr­ir­gefið“. Þá hélt spá­maður­inn á spjaldi sem á stóð: Ég er Charlie.

Frétt DR

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert