Að minnsta kosti 23 létust er vörubíll ók inn í hóp pílagríma í Mexíkó. Talið er að bremsur bílsins hafi bilað með þessum hrikalegum afleiðingum. Slysið varð í Zacatecas-héraði í norðurhluta landsins í gær.
Í gær höfðu 16 látist og 30 voru særðir. Sjö til viðbótar létust í dag.