Níu ára drengur lét lífið eftir að hafa hlotið högg í höfuðið í hafnarboltaleik í Kansas í Bandaríkjunum. Kaiser Carlile var kylfusveinn í leik The Bee Jays og San Diego Waves og var að sækja kylfu sem lá á jörðinni þegar hann var óvart sleginn í höfuðið með hræðilegum afleiðingum.
Hafnarboltaleikmaður tók ekki eftir Carlile og sló hann óvart með hafnarboltakylfu en Carlile var með hjálm. Leikurinn fór fram á laugardagskvöld en pilturinn lést í gærkvöldi.
He made an impact on every single person's lives, especially mine. He was an incredible kid. #havefun love you buddy pic.twitter.com/UkHwjlY8i9
— Gavin Wehby (@gwehby4) August 3, 2015