Krónprinsessan á von á barni

Estelle litla í faðmi foreldranna. Hún eignast lítið systkini á …
Estelle litla í faðmi foreldranna. Hún eignast lítið systkini á næsta ári. Af Facebooksíðu Kungahuset

Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar og eiginmaður hennar Daníel prins eiga von á sínu öðru barni á næsta ári. Greint var frá þessu á Facebook síðu sænsku konungsfjölskyldunnar í dag.

Þegar eiga hjónin hina þriggja ára gömlu Estelle prinsessu en Viktoría og Daníel gengu í hjónaband í júní 2010. Krónprinsessan á von á sér í mars á næsta ári og í tilkynningu frá höllinni kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir því að meðgangan muni hafa áhrif á störf Viktoríu næstu mánuði.

Deras Kungliga Högheter Kronprinsessan Victoria och Prins Daniel har den stora glädjen att meddela att de väntar sitt...

Posted by Kungahuset on Friday, September 4, 2015
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert