Var skotin í bakið og missti nýra

Gardner var í viðtali í beinni útsendingu þegar árásin átti …
Gardner var í viðtali í beinni útsendingu þegar árásin átti sér stað. Fréttamaðurinn og upptökumaðurinn létust á staðnum. AFP

Konan sem var í viðtali á bandarískri sjónvarpsstöð þegar að byssumaður hóf skothríð á starfsfólk stöðvarinnar í síðasta mánuði hefur nú verið útskrifuð af sjúkrahúsi.

Vicki Gardner, sem var skotin í bakið, var útskrifuð af sjúkrahúsi í gær. NBC greinir frá þessu.

Gardner er fram­kvæmda­stjóri viðskiptaráðs Smith Mountain Lake og var í viðtali við fjöl­miðlafólkið Al­i­son Par­ker og Adam Ward þegar þau voru myrt af fyrr­ver­andi sam­starfs­manni  26. ágúst.

Byssumaðurinn, Vester Flanagan, féll fyrir eigin hendi sama dag. Hann hafði starfað með fólkinu á sjónvarpsstöðinni en var sagt upp fyrir nokkrum árum. 

Gardner undirgekkst tvær aðgerðir eftir árásina og missti hægra nýrað samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldu hennar. Talsmaður fjölskyldunnar greindi frá því að Gardner myndi eftir árásinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert