Níu fangar fluttir frá Guantanamo

Guantanamo.
Guantanamo. AFP

Níu fangar frá Jemen sem setið hafa inni í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu voru fluttir til Sádí-Arabíu í kvöld. 

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, lagði fyrr á þessu ári fram áætlun um að loka Guant­anamo-herfang­els­inu á Kúbu. Hann safði að tími sé kom­inn til að loka fang­els­inu, sem hafi svikið hags­muni og gildi Banda­ríkja­manna.

Obama hét því að loka fang­els­inu þegar hann tók við embætti en hef­ur ekki haft er­indi sem erfiði hingað til.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert