100 ára fangelsi fyrir að skera fóstur úr legi

Michelle Wilkins, ólétt af dóttur sinni.
Michelle Wilkins, ólétt af dóttur sinni. Skjáskot/CNN

Kona frá Colorado hefur verið dæmd í 100 ára fangelsi fyrir að ráðast á ólétta konu og skera fóstur úr legi hennar.

Dynel Lane vann áður sem sjúkraliði. Hún svaraði auglýsingu sem Michelle Wilkins, sem var komin sjö mánuði á leið, hafði birt og óskað eftir meðgöngu- og ungbarnafötum.

Lane réðst svo á Wilkins á heimili sínu er hún kom þangað til að sækja fötin í mars í fyrra. Hún skar hana upp og tók fóstrið úr legi hennar. Wilkins lifði árásina af en litla stúlkan hennar lést.

Í yfirlýsingu sem Wilkins sendi frá sér eftir að dómurinn féll talar hún beint til Lane og segir hana aldrei hafa fyllilega játað gjörðir sínar. „Tárin sem féllu í réttarsalnum voru aðeins af sjálfsvorkunn,“ skrifaði Wilkins.

Í frétt CNN um árásina segir að þegar Wilkins hafi komið á heimili Lane hafi hún ráðist á hana, barið og stungið. Hún hafi svo skorið í leg hennar og fjarlægt fóstrið.

Saksóknarinn segir að Lane hafi þóst vera ólétt. Kærasti hennar hafi m.a. komið heim þennan dag og til að fara með hana í mæðraeftirlit. Hún hafi þá verið útötuð í blóði og sagst hafa misst fóstrið.

Kærastinn fór með Lane og barnið á sjúkrahús en það sem hann vissi ekki var að Wilkins lá í blóði sínu í kjallara hússins. Wilkins náði sjálf að hringja á lögregluna. Hún reyndi sjálf að stöðva blæðinguna.  Læknarnir sem hlúðu að henni er hún komst loks á sjúkrahús segja að skurðurinn hafi verið nokkkuð vel gerður, augljóslega hafði sá sem hann gerði einhverja vitneskju um hvernig framkvæma ætti keisaraskurð.

Lane játaði að hafa skorið barnið úr legi Wilkins. En hún hélt því fram við lögreglu að Wilkins hefði ráðist á sig og að hún hefði varið sig. Hún sagðist svo hafa verið hrædd um að hafa drepið Wilkins í átökunum og því ákveðið að skera hana upp og ná í barnið til að reyna að bjarga lífi þess.

Móðir Lane sagði við réttarhöldin að hún hefði misst ungan son sinn. Hann hefði drukknað og Lane aldrei náð að jafna sig. Hún hafi því þráð að eignast annað barn. Fyrir á hún tvær unglingsdætur.

Lane var ekki dæmd fyrir morð þar sem fóstur er samkvæmt lögum í Colorado ekki manneskja nema að það haldi lífi í einhvern tíma utan legs. Hún var hins vegar dæmd fyrir morðtilraun, árás og fyrir að binda enda á meðgöngu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert