Liðhlaupar ekki velkomnir aftur

Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. AFP

Bretar verða ekki velkomnir í Evrópusambandinu aftur ef meirihluti kjósenda í Bretlandi greiðir atkvæði með því í þjóðaratkvæði 23. júní að segja skilið við sambandið. Þetta segir Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í viðtali við franska dagblaðið Le Monde. „Liðhlaupum“ yrði ekki tekið með opnum örmum á nýjan leik.

Juncker segir ennfremur í viðtalinu samkvæmt frétt Financial Times að yfirgefi Bretland Evrópusambandið verði það skilgreint sem ríki utan sambandsins og að ekki yrði lögð á það áhersla að veita því sérstaka meðferð umfram önnur slík. Juncker hefur áður lýst þeirri skoðun sinni að ekki eigi eftir að koma til þess að Bretar yfirgefi Evrópusambandið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert