Sjö úkraínskir hermenn létu lífið í sprengjuárásum í austurhluta Úkraínu síðasta sólarhringinn. Eru þetta flest dauðsföll í deilunni á einum degi það sem af er þessu ári en þar að auki særðust níu.
Leiðtogar Frakklands, Þýskalands, Rússlands og Úkraínu hafa nú kallað eftir að friðarsamkomulagi verði komið á í austurhluta landsins þar sem uppreisnarmenn og stjórnarhermenn takast á.
Formaður öryggis- og varnarmálaráðs Úkraínu, Oleksandr Turchynov, kenndi Rússlandsstjórn um árásirnar og sakaði Rússa um að gera hvað sem er til þess að standa í vegi fyrir því að deilan verði útkljáð á friðsamlegan hátt.
Hann sagði jafnframt að Rússar væru að koma þungavopnum yfir til austur Úkraínu og að síðasta mánuðinn hafi verið meira um umferð ómannaðra rússneskra loftfara í úkraínskri lofthelgi.
Leiðtogar Frakklands, Þýskalands, Rússlands og Úkraínu ræddu saman í síma í dag og kölluðu eftir því að friðarsamkomulaginu, sem samþykkt var í Minsk á síðasta ári, verði komið á sem fyrst.
Átökin milli uppreisnarmanna hliðhollra Rússum og stjórnarhersins í austurhluta Úkraínu hófust í apríl 2014 og hafa rúmlega 9.300 látið lífið.