Árásarmaðurinn gerður að píslarvotti

Loftmynd af Stanford-háskólasvæðinu.
Loftmynd af Stanford-háskólasvæðinu. Wikipedia/Jrissman

Ummæli föður fyrrverandi nema við Stanford-háskóla í Bandaríkjunum hafa vakið hörð viðbrögð, en hann sagði að sonur sinn ætti ekki að þurfa að sitja í fangelsi vegna „20 mínútna gjörnings“. Umræddur gjörningur fólst í kynferðisofbeldi gegn konu sem var rænulaus þegar glæpurinn átti sér stað.

Brock Turner var á fimmtudag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir árásina en hann var m.a. fundinn sekur um að hafa brotið gegn konunni með það í huga að nauðga henni. Hámarksrefsing fyrir glæpinn var 14 ára fangelsisdómur og hefur niðurstaðan vakið mikla reiði, en Turner mun líklega aðeins verja þremur mánuðum bak við lás og slá.

Aaron Persky, dómarinn í málinu, sagðist hafa litið til þess að Turner hefði fengið góð meðmæli og væri ekki á sakaskrá. Sagði hann að fangelsisvist myndi hafa „veruleg áhrif á hann“.

Líf hennar krufið til að afsaka hann

Hið 23 ára fórnarlamb Turner tjáði sig í réttarsalnum og fór með samantekt 12 blaðsíðna yfirlýsingu sem hún hafði lagt fyrir dómarann. Þar rifjaði hún upp hvernig hún hefði farið í partý 17. janúar 2015 og vaknað á sjúkrahúsi daginn eftir án þess að muna hvað hafði gerst kvöldið áður. Þá talaði hún um rannsóknina sem hún þurfti að gangast undir til að safna mætti sönnunargögnum og sársaukafullar yfirheyrslur á meðan málið stóð yfir.

Hún lýsti því m.a. hvernig henni hefði verið ráðlagt að ráða valdamikla lögmenn og sérfræðivitni; hvernig henni hefði verið tjáð að árásarmaðurinn myndi gera allt til að sannfæra fólk um að hann hefði bara verið ringlaður þegar hann réðist á hana.

„Ég var skotmark markvissra spurninga sem beindust að einkalífi mínu, ástarlífi mínu, fjölskyldulífi mínu; vitlausra spurninga sem miðuðu að því að safna smávægilegum upplýsingum til að reyna að grafa upp afsökun fyrir þennan mann, sem hafði afklætt mig til hálfs áður en hann hafði fyrir því að spyrja mig að nafni,“ sagði konan.

Yfirlýsing hennar hennar hefur vakið heimsathygli og verið skoðuð oftar en 4,6 milljón sinnum á BuzzFeed.

Tvö líf eyðilögð

Kynferðisofbeldi við háskóla er svo títt í Bandaríkjunum að nær er að tala um faraldur, en síðustu misseri hefur átt sér stað ákveðin vitundarvakning varðandi það hversu árásarmennirnir sleppa oft vel en fórnarlömbin fara illa út úr því að stíga fram.

Í þetta sinn var það faðir árásarmannsins, Dan Turner, sem gekk fram fyrir skjöldu til varnar syni sínum og sagði að líf hans hefði tekið varanlegum breytingum vegna málsins. Hann biðlaði til dómarans um að skilorðsbinda dóminn, og sagði að sonur sinn hefði þegar goldið „20 mínútna gjörning“ dýru verði.

Sjálfur sagði Turner yngri að hann vildi beina kröftum sínum að því að fræða ungt fólk um það hvernig drykkja gæti eyðilagt mannslíf, en fórnarlamb hans benti á að tvö líf hefðu verið eyðilögð.

„Skaði þinn var áþreifanlegur; þú varst sviptur titlum, gráðum, skólavist. Skaði minn var innvortis, óséður, ég ber hann með mér. Þú tókst sjálfsvirðingu mína, einkalíf, orku, tíma, öryggi, nánd, sjálfsöryggi, rödd, þar til í dag.“

Turner hyggst áfrýja dómnum.

Guardian sagði frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka