Brenndi dóttur sína lifandi

Mörg hundruð konur eru drepnar á hverju ári í Pakistan …
Mörg hundruð konur eru drepnar á hverju ári í Pakistan í svokölluðum „heiðursmorðum“. AFP

Pakistönsk unglingsstúlka var brennd lifandi af móður sinni í dag eftir að hún giftist manni sem hún valdi sér sjálf. Stúlkan var aðeins 16 ára gömul og hét Zeenat Bibi. Móðir hennar, Perveen Bibi, kveikti í henni í borginni Lahore en rúm vika er síðan hún gekk í hjónaband.

„Perveen Bibi drap dóttur sína með því að brenna hana lifandi um klukkan 9 í morgun,“ sagði lögreglufulltrúinn Haidar Ashraf í samtali við AFP og bætti við að stúlkan hafi gengið í hjónaband 29. maí síðastliðinn.

Þetta er þriðja „heiðursmorðið“ í landinu á stuttum tíma.

Í síðustu viku var hinn 19 ára gamla Maria Sadaqat pyntuð og brennd lifandi nálægt Islamabad eftir að hún hafnaði vonbiðli sínum. Þá var önnur kona, á aldrinum 16 til 18 ára, byrluð ólyfjan, kyrkt og líkami hennar brenndur í norðvesturhluta landsins 29. apríl. Var það þorpsráð sem fyrirskipaði morðið á stúlkunni en hún átti að hafa aðstoðað vinkonu sína að hlaupast á brott með elskhuga sínum.

Að sögn Hasan, eiginmanns stúlkunnar sem var drepin í morgun, hafði parið flúið að heiman til þess að giftast en snúið aftur eftir að fjölskylda stúlkunnar sagðist vilja halda upp á hjónabandið. Var því lofað að enginn myndi meiða hana.

„Eftr að hafa búið með mér í fjóra daga eftir giftinguna hafði fjölskyldan samband og lofaði því að halda handa okkur almennilegt brúðkaup ef stúlkan kæmi heim og væri þar í átta daga. Eftir það mættum við búa saman,“ sagði Hasan. „Zeenat var hikandi að fara aftur og sagði að hún yrði drepin en við ákváðum að hún myndi fara því frændi hennar lofaði að passa hana.“

Sagði Hasan að tveimur dögum eftir að hún fór aftur heim hringdi hún í Hasan og sagði fjölskylduna ætla að meiða sig og bað hann um að sækja sig. „Ég sagði að við þyrftum að bíða í þessa átta daga sem við lofuðum. Þá var hún drepin.“

Að sögn lögreglu hefur Perveen játað að hafa drepið stúlkuna og gerði lögregla steinolíu upptæka á heimilinu.

Mörg hundruð konur eru drepnar á ári hverju af ættingjum sínum í Pakistan til þess að vernda „heiður fjölskyldunnar“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert