Heiðursmorð bönnuð með lögum

Fjær liggur lík pakistanskrar konu sem fjölskylda hennar myrti í …
Fjær liggur lík pakistanskrar konu sem fjölskylda hennar myrti í nafni heiðurs. Nær liggur meintur ástmaður hennar sem hún átti að verið í sambandi við. Hann var einnig myrtur. AFP

Heiðursmorð eru bönnuð í Pakistan samkvæmt breytingum á lögum sem samþykkt voru í dag. Í lögunum var glufa sem gerði einstaklingum sem frömdu heiðursmorð kleift að ganga lausir ef ættingjar fórnarlambsins höfðu fyrirgefið þeim.

Lögin marka tímamót í pakistönsku samfélagi en lengi hefur verið barist fyrir því að fella þessi lög úr gildi.

Mörg hundruð láta lífið á hverju ári vegna heiðursmorða þar í landi. Þetta er brýnt til að koma í veg fyrir að þessir glæpir viðgangist, segir í frumvarpinu.

Heiðurs­morð eru tíð í Pak­ist­an. Morðin eru fram­in til að vernda heiður fjöl­skyld­unn­ar og fórn­ar­lömb­in eru iðulega stúlk­ur og kon­ur. 

Frétt mbl.is Kyrkti syst­ur sína í bræðisk­asti

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert