Húsgagnarisanum IKEA ber að innkalla 27 milljónir kommóða af gerðinni Malm í Norður-Ameríku vegna dauða þriggja barna í Bandaríkjunum.
Lars Peterson, forstjóri IKEA í Bandaríkjunum, segir í samtali við fréttastöðina NBC að fyrirtækið hafi hætt sölu á Malm-kommóðunum þar sem þær geti verið hættulegar.
Frá árinu 2014 hafa þrjú börn látið lífið eftir að hafa kramist undir skúffum úr kommóðunni. Í fyrra brýndi fyrirtækið fyrir viðskiptavinum að notast við veggfestingar við húsgagnið.
Í kjölfar andláts þriðja barnsins í febrúar á þessu ári gaf IKEA út viðvörun vegna húsgagnsins, en hefur beðið þar til núna með að innkalla vöruna.
Fyrirtækið segist ekki munu innkalla kommóðurnar í Bretlandi og Írlandi. „IKEA í Bandaríkjunum og Kanada mun innkalla kommóðuna í Norður-Ameríku eingöngu,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Þá segir fyrirtækið að húsgagnið sé hættulaust, sé það réttilega fest við vegg samkvæmt leiðbeiningum.