Strákofi innblásinn af hári Trumps

Listamennirnir Doug Cameron og Tommy Noonan vona að Trump-kofinn þeirra muni beina sjónum Bandaríkjamanna að þeirri efnahagslegu gjá sem er að stækka meðal þegna þjóðarinnar. Kofinn er úr stráum og er innblásinn af hári Donalds Trump, forsetaefnis Repúblikana. 

Trump-kofinn var hannaður og byggður í New York en svo fluttur til Cleveland þar sem flokksþing Repúblikana fer nú fram. Honum var komið fyrir utan við ráðstefnuhöllina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert