Lífsbaráttan getur verið hörð á sléttum Afríku. Að því komst fíll sem varð fyrir árás hvorki fleiri né færri en fjórtán ljóna. Ljónin stukku á bak hans og læstu í hann klónum. En fíllinn var ekki tilbúinn að gefast upp.
Bardagi fílsins og ljónanna náðist á myndband sem hefur farið eins og eldur í sinu um netheima. Um ungan fíl er að ræða sem hefur einhverra hluta vegna villst frá fjölskyldu sinni. Ljón ráðast síður á fíla, og yfirleitt aðeins unga, ef þeir halda hópinn.