Lögregluyfirvöld í Tékklandi tilkynntu í dag að þau væru nú með til rannsóknar bellibragð hóps aðgerðasinna, sem andsnúnir eru íslamstrú, sem olli mikilli hræðslu í miðbæ Prag um helgina.
AFP-fréttastofan hefur eftir Tomas Hulan, talsmanni lögregluyfirvalda í Prag, að lögregla sé nú að rannsaka „meinta röskun á almannafriði“, þá sé heldur ekki útilokað að ákært verði fyrir dreifingu á röngum og kvíðvænlegum upplýsingum.
Aðgerðasinnarnir voru klæddir sem vígamenn í heilögu stríði og hrópuðu „Allahu Akbar“ og hleyptu af skotum úr leikfangabyssum er þeir hlupu inn í mannfjöldann á torgi gamla miðbæjarins, sem er vinsæll viðkomustaður ferðamanna.
Mikill ótti greip um sig meðal margra ferðamanna sem flúðu óttaslegnir og földu sig á veitingastöðum umhverfis torgið.
Brellan var skipulögð af Martin Konvicka, leiðtoga aðgerðasinnanna, og hefur verið fordæmd jafnt af tékkneskum stjórnmálamönnum sem og fjölmiðlum í landinu.
Milan Chovanec, innanríkisráðherra Tékklands, sagði brelluna vera „fávitahátt“.
Konvicka sagðist hins vegar hafa vonast til að sjokkera fólk með brellunni, sem lögregla stöðvaði eftir 20 mínútur.