Forsætisráðherra Spánar, Mariano Rajoy, hefur tapað kosningu á þingi til að tryggja sér setu í embætti í annað kjörtímabil. Stjórnmálaskýrendur segja tapið aðeins til þess fallið að auka stjórnmálakreppuna í landinu, en tvær síðustu þingkosningar hafa ekki skilað augljósum sigurvegara.
Rajoy þurfti að minnsta kosti atkvæði 176 þingmanna, í 350 manna þingi, en náði aðeins að tryggja sér 170 þeirra. Eru nú meiri líkur á þriðju þingkosningunum á innan við ári.
Vefur BBC greinir frá þessu.