Kosningastjóri Donalds Trump segir að framboðið hafi ekki boðið fyrrverandi ástkonu Bills Clinton að vera viðstödd kappræður Trumps og Hillary Clinton í kvöld líkt og Trump sagðist ætla að gera.
„Við höfum ekki boðið henni formlega og við eigum ekki von á að hún verði þarna sem gestur Trump-framboðsins,“ segir Kellyanne Conway, kosningastjóri Trumps, við CNN.
Mike Pence, varaforsetaefni Trumps, sagði við FOX-fréttastofuna í gær að Trump hefði aðeins verið að gera grín að framboði Clinton með því að segjast ætla að bjóða Flowers. Hann hefði sagt þetta til að sýna fram á að framboð Clinton væri að reyna að dreifa athyglinni frá alvöru kosningamálum.
Trump skrifaði færslu á Twitter um að hann hygðist bjóða Flowers að sitja á fremsta bekk í kappræðunum. The New York Times segir að Flowers hafi staðfest við blaðið að hún verði viðstödd kappræðurnar. „Já, ég verð viðstödd,“ hefur blaðið eftir henni.
Bill Clinton og Gennifer Flowers áttu í tólf ára ástarsambandi á áttunda og níunda áratugnum. Málið komst í hámæli í kosningabaráttu Clintons árið 1992 en þá neitaði Clinton að hafa átt í sambandi við hana. Flowers hélt þá blaðamannafund og sýndi fram á sambandið með upptökum af samtölum þeirra.
Kosningastjóri Trump var spurður hvort að Trump myndi vekja máls á ástarlífi Bills Clinton í kappræðunum. „Það eru engin plön um að gera það,“ var svarið.
Kappræðurnar í kvöld eru sagðar verða sögulegar. Búist er við því að 100 milljónir manna muni fylgjast með þeim í sjónvarpi.