Minnst einn er látinn og yfir hundrað eru særðir eftir að farþegalest sem var á talsverðri ferð skall á brautarpalli á lestarstöð í borginni Hoboken í New Jersey í Bandaríkjunum í dag.
Samkvæmt fréttum sem bárust af slysinu fyrr í dag var talið að þrír væru látnir en nýjustu fregnir herma að aðeins hafi verið staðfest eitt dauðsfall. Þá séu 103 særðir hið minnsta.
Frétt mbl.is: Lestarslys í Bandaríkjunum
Hinn látni stóð á brautarpallinum þegar slysið varð og fékk í sig brak sem skaust um brautarpallinn eftir áreksturinn. Þetta segir Chris Christie, ríkisstjóri í New Jersey og kemur fram í frétt CNN.