Bandaríkin og Tyrkland hafa gert samkomulag um að vinna saman gegn yfirráðum Ríki íslams. Þetta var ákveðið á fundi í Tyrklandi sem varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Ashton Carter, og forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, áttu í dag.
Á fundinum sátu einnig forsætisráðherra og varnarmálaráðherra Tyrklands. Á fundinum var einnig ákveðið að áfram yrði haldið að vinna með NATO gegn sameiginlegri ógn sem steðjar af Ríki íslam.
Fundi þeirra í Ankara var mótmælt. Á mótmælaspjöldum var Carter vinsamlegast beðinn um að hafa sig á brott.
„Báðir aðilar voru sammála um að vinna saman að því að ráða niðurlögum Ríki íslams í Írak og Sýrlandi. Við munum vinna að því verkefni á gagnsæjan hátt,“ er haft eftir Peter Cook,starfsmanni Pentagon.
Rúm tvö ár eru liðin frá því hernaðaraðgerðir bandamanna gegn Ríki íslams hófust í Írak.
Bandaríkin eru meðvituð um vaxandi ólgu milli Tyrklands og Íraks eftir að Ríki íslams náði höfuðborginni Mosúl á sitt band. Borgin hefur verið höfuðvígi hryðjuverkasamtakanna undanfarin tvö ár.
„Við höfum verið að ræða bak við tjöldin við Tyrki og Íraka um hvernig hægt sé að komast að sameiginlegri niðurstöðu um hvernig hægt sé að ná yfirráðum í borginni Mosúl,“ er haft eftir opinberum bandarískum starfsmanni sem óskaði eftir nafnleynd.
Í gær náðu sérsveitir íraska hersins aftur völdum yfir bænum Bartalla í útjaðri borgarinnar Mosúl í Írak samhliða nýrri sókn kúrdískra hersveita að borginni. Borgin er sögð síðasta vígi hryðjuverkasamtakanna..
Frétt mbl.is: Sóknin gegn Mosúl gengur framar vonum
Heimsókn Carters til Tyrklands ber upp stuttu eftir að tyrkneskar herflugvélar réðust á hersveitir bandamanna í norðurhluta Sýrlands. Í gær fullyrti tyrkneski herinn að í þessum árásum hefðu á bilinu 160 og 200 hermenn látið lífið.
Þetta voru liðsmenn People's Protection Units (YPG). Bandaríkin er sögð styðja þessar hersveitir. Carter neitaði að tjá sig um þetta mál þegar hann var í umræddri ferð í Tyrklandi.