Tveir jarðskjálftar urðu á Ítalíu í kvöld, nálægt Visso í Macerata-héraði. Skjálftarnir mældust töluvert stórir, sá fyrri 5,1 og sá síðari 6,1. Byggingar skulfu og íbúar streymdu út á götur í kjölfar skjálftanna.
Tveir eru slasaðir en ekki er vitað um frekara manntjón.
Tveir mánuðir eru liðnir frá því að öflugur jarðskjálfti reið yfir Ítalíu sem var með þeim mannskæðustu sem hafa gengið yfir landið. Fjöldi manns lét lífið, auk þess sem gríðarlegt eignatjón varð á svæðunum sem verst urðu úti.
Skjálftarnir í kvöld áttu upptök sín um 60 kílómetra frá Amatrice, þar sem skjálftinn í ágúst átti upptök sín. Skjálftarnir fundust víða um miðja Ítalíu, þar með talið höfuðborginni, Róm, þar sem byggingar og rúður skulfu.
Yfirvöld meta nú ástandið eftir skjálftana tvo. Skólar á svæðinu verða til að mynda lokaðir á morgun.