Macron staðfestir forsetaframboð

Emmanuel Macron.
Emmanuel Macron. AFP

Fyrrverandi efnahagsmálaráðherra Frakklands, Emmanuel Macron, staðfesti í dag að hann ætlaði að bjóða sig fram í embætti forseta landsins. Forsetakosningar fara fram í Frakklandi í vor.

Emmanuel Macron og eiginkona hans, Brigitte.
Emmanuel Macron og eiginkona hans, Brigitte. AFP

Emmanuel Macron er 38 ára gamall, fæddur 21. desember 1977 í Amiens í Norður-Frakklandi. Foreldrar hans eru Jean-Michel Macron, prófessor í taugasjúkdómafræði við háskólann í Picardy og Françoise Macron-Noguès, læknir. Samkvæmt því sem fram hefur komið í viðtölum var Macron náinn ömmu sinni og dvaldi löngum á heimili hennar.

Hjónin Emmanuel Macron og Brigitte Trogneux sjást hér koma í …
Hjónin Emmanuel Macron og Brigitte Trogneux sjást hér koma í útför kaupsýslumannsins Henry Herman í Saint-Sulpice kirkjunni í París nýverið. AFP

Macron, sem lærði á píanó í 10 ár, lauk BA-námi í heimspeki við Paris-Ouest Naterre La Défense háskólann og lauk síðar námi í stjórnsýslufræðum og MA námi í heimspeki þar sem lokaritgerð hans fjallaði um Niccolò Machiavelli og Georg Wilhelm Friedrich Hegel.  Að námi loknu starfaði hann í efnahagsmálaráðuneytinu sem sérfræðingur í fjármálum og fór þaðan til starfa hjá fjárfestingabankasviði Rothschild & Cie bankans. Þar sá hann meðal annars um samruna stórfyrirtækjanna Nestlé og Pfizer. 

Macron var félagi í Sósíalistaflokknum (PS) frá 2006 til ársins 2009. Hann hóf störf fyrir Hollande forseta Frakklands árið 2012 en hafði frá 2011 aðstoðað Hollande við framboðið og var skipaður iðnaðar- og efnahagsmálaráðherra í ríkisstjórn Manuels Valls í ágúst 2014. Hann sagði af sér embætti 30. ágúst 2016 og stofnaði um svipað leyti nýjan stjórnálaflokk, miðjuflokkinn En Marce eða Hreyfinguna á íslensku.

Ef Macron verður kjörinn forseti þá verður hann yngstur til þess að gegna því embætti í Frakklandi. En leiðin í Élysée-höll verður væntanlega þyrnum stráð því það var hans hlutverk í ríkisstjórn Frakklands að berjast við leiðtoga stéttarfélagana sem og þá sem eru mest til vinstri innan Sósíalistaflokkinn þegar kom að lengd vinnuvikunnar og breytingar á vinnulöggjöfinni. 

Þykir þeim Macron of hallur undir viðskiptalífið og þegar hann kom fram á opinberum fundi í júní köstuðu verkmenn eggjum í hann og létu fúkyrðin streyma.

En Marche ! eða Hreyfingin en Emmanuel Macron stofnaði flokkinn …
En Marche ! eða Hreyfingin en Emmanuel Macron stofnaði flokkinn í haust. AFP

Undanfarna mánuði hefur hann farið víða til þess að kynna En Marche og kanna baklandið fyrir framboð til embættis forseta. Eiginkona hans, Brigitte Trogneux, er yfirleitt með í för en hann varð ástfanginn af henni aðeins 16 ára. Þá var hún kennari í menntaskólanum sem hann var í en Trogneux er 20 árum eldri en Macron. Þau gengu í hjónaband árið 2007 og búa þrjú börn hennar af fyrra hjónabandi hjá þeim. Í viðtali við Paris Match fyrr á árinu lýsti hún því þegar Macron hafi sagt við hana 17 ára gamall að það skipti engu hvað hún geri - hann ætli sér að kvænast henni.

Nýleg skoðanakönnun bendir til þess að 49% frönsku þjóðarinnar líki vel við þá hugsun að hann verði næsti forseti landsins en ljóst að hann á eftir að ávinna sér traust vinstrimanna sem telja hann of frjálslyndan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert